sunnudagur, febrúar 11, 2007

Árshátíð og afmæli

Fór á árshátíð Byko/Elko í gærkvöldi. Alveg ofsalega fínt en maturinn var vægast sagt ógeðslegur. "Note to self: Aldrei fara aftur svöng í mat á Broadway!"
Hvað foi gras eða hvernig sem það er nú skrifað, er ógeðslega vont. Kannski tókst þeim að klúðra þessu en þetta er ofmetnasti matur veraldar ásamt ostrum. *Gubb*
Ég, íslenskur sveitaalmúginn, kunni allavega ekki að meta þetta.

Maðurinn minn á afmæli í dag, sem þýðir að við vorum stödd á árshátíðinni þegar afmælisdagurinn gekk í garð. Við Gaui, vinnufélagi mannsins míns, fengum Papana til þess að syngja afmælisönginn fyrir heiðursmanninn sem varð svo stoltur að hann steig upp á stól og hneigði sig (það er ekki nóg að vera 207 cm á hæð, hann varð að sjást aðeins betur) :D

Héldum svo famelí afmælisveislu í dag, svona gamaldags með kökum og dóti. Alveg dásamlegt!
Er alveg búin á því eftir þennan sólarhring, langar að sofa þangað til ég á að mæta til vinnu á morgun. Ahh...

3 comments:

Hrabba sagði...

Heyrðu kona!!
Ef þú ert að koma til hinnar guðdómlegu Bergen, þá er það ekkert spurning um neitt annað -þú heimsækir mig!! -punktur ;)

Iðunn sagði...

hehe þú ert svo fyndin Valla mín :O)

Iðunn sagði...

Er iggi kominn tími á nýtt blogg???