Er dottin ofan í alluc.org. Mjög svo girnileg síða sem inniheldur flesta bestu sjónvarpsþætti veraldar. Dásamlegt. Er einmitt að horfa á CSI 7. seríu þessa dagana. Ferlegt að þurfa að mæta til vinnu á svoleiðist stundum, meira vesenið.
Erum með eitt fermingardýr í pössun, einkunnarorð sólarhringsins eru þá s.s "tölvuleikur, ógisslakúl, nei-ég-borða-ekki þetta og glætan"
Hef loksins fengið mér slopp og inniskó og er ég eins og kven útgáfan af Hugh Hefner, amk 14 tíma á dag.
Svo hefur sá fáheyrði atburður gerst að þvottakarfan er tóm. Og ég hef ekki ennþá farið í öll fötin sem ég keypti úti. Ferlegt.
Fer samt aftur út í Maí. Hef engu lofað um hvort eitthvað verði farið í búðir. En þar sem ég þekki mig þetta vel, á ég eftir að titra af spenningi um leið og ég labba Torgalmenningen eða Bergen Storsenter.
Svo af því að ég var svo dugleg að eyða í Danmörku þá sá Íslensk Getspá sér fært um að millifæra á okkur hjónin, hundraðþúsundkall. Já það borgaði sig svo sannarlega að hætta ekki að spila í lottóinu (Sem ég reyndar hafði ætlað að kannsela í langan tíma, maður vinnur aldrei neitt...)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

2 comments:
til hamingju með stóra vinninginn!!!
Hjúg Hefner....hahahaha jú krakk mí uppppp!!! já og til hamingju með vinninginn - útlanda kellingin þín...ég er ekkert abbó en bara svona ef þú vissir það ekki ÞÁ ER ÉG AÐ FARA TIL AMERÍKU Í ÁGÚST nanananabúbú :D Síjúleiter aligeiter.
Sendu inn athugasemd