mánudagur, nóvember 06, 2006

Andleysi

Veturinn er greinilega kominn. Er hálfandlaus og þreytt.
Myrkrið er farið að hafa áhrif á mig og mér líkar það ekki. Hef alltaf átt pínulítið erfitt með skapið og lundina á veturna. Er að reyna að vinna markvisst í því. Á lýsi ekki að vera gott fyrir skammdegisþunglyndi? Minnir það, ætti kannski að fjárfesta í glasi af perlum, glætan að ég drekki þessa fiskiolíu af stút eins og sumir...

Er ennþá mjó og verð bara mjórri. Sem er nú gott.

Leiðist en nenni ekki að skrifa neitt, það lekur allt út þegar ég þarf að nota kollinn.
Var reyndar á fundi í allan dag, frá 9-17. Hugsaði stíft allan tímann. Kannski það hafi haft áhrif?

2 comments:

Zunzilla sagði...

Já, dúllan mín, það er Omega3 sem þú átta taka, það virkar. Það er engin vandi að vera heiladauður eftir fundarsetu allan þennan tíma, was there for too long time but now has quit! Allar creatívar hugsanir hverfa og löngun í listsköpun gufar upp! Skelltu þér í laugina, taktu 1-2 tíma í ljós. Farðu að föndra fyrir jólin, kveiktu á litaperum, svo eitthvað sem nefnt, bara ekki pæla í myrkrinu. Án þess skynjum við ekki ljósið!. .. .Ciao bebe,

Barbie Clinton sagði...

Viltu koma með mjónuuppskrift um hæl. Svo þarftu að auka við þig c,e,a og b vítamínin.