Var ógeð í dag, komin með leið á að vera settleg og fín alla daga.
Fór í búðina svona útlítandi: (byrjum efst)
*Með úfið ógreitt hár
*Algerlega ómáluð
*Ótannburstuð
*Eldrautt naglalakk
*Sægrænn trefill
*Skær peach lituð hettupeysa
*Grasgrænn vafningskjóll sem gægðist undan peysunni
*Svartar gamlar ljótar pilsbuxur
*Brúnir hnésokkar
*Ökklaskór úr leðri
Held ég hafi alveg toppað allar flíspeysukonurnar í Bónus þennan daginn.
Ég er pjöttuð. Ég hefði aldrei getað viðurkennt það fyrir nokkrum mánuðum síðan en núna sé ég ljósið.
"Hæ, ég heiti Overmaster og ég er pjattrófa"
Sko nefnilega, fyrir þau sem ekki vita, var ég einu sinni ofboðslega mikið tomboj (stelpustrákur)
Eyddi unglingsárunum í Dickies buxum og hettupeysum, með tagl í hárinu, sígó í annari og hliðartösku í hinni. Annars lagið var ég í gallabuxum með rassinn á milli hnjánna og í Adidas skóm með 10 cm þykkum reimum. *bjánahrollur*
En núna er ég dama, með langar rauðar neglur og í hælaskóm. Og gloss. Mikið af því.
Þetta snýst allt um að sætta sig við sig eins og maður er. Hverju sinni. Ekki eins og maður var.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

3 comments:
Ég er í andnauð með hjartaflökkt! Stofna bænahring fyrir þig og kveiki bál!
Þetta gerist þegar búið er að mylja skelina utan af sér, horfa í spegilinn og segja , "Þetta er ég"! og vera stoltur af því (oftast nær). Mundu bara eftir bleiku pjattrófunni með dúlleríið í hárinu sem sagt óð drullupollana upp í klof, var dregin lá við með kranabíl upp úr leðjunni. Þú er hvorutveggja, dama og truckdriver, eftir því hvernig skapi þú ert í ! Þannig er það nú!
Guð .... minn .... góður, Miss V!!
Ég ætla rétt að vona að þú hafir ekki sagt sálu frá því að þú værir vinkona mín, svona útlítandi!
*innsog*
Ég keypti ísskáp af kallinum þínum í gær. Hefði ég vitað af þessu, hefði ég vinsamlegast beðið hann um að skila góðu head-slappi frá mér til þín.
Hnuss!
Sendu inn athugasemd