sunnudagur, október 08, 2006

Árangur

Hvernig veit maður að maður er að standa sig í lífinu? Á manni að líða vel?

Ég á mann, ég á ketti, ég á íbúð og nýlegan bíl, er næstum orðin grönn, ekkert sérlega ljót, gengur vel í vinnunni, á góða vini og fjölskyldu. Samt er ég aldrei almennilega sátt, er alltaf hálf eirðarlaus og finnst eins og að það vanti eitthvað, að það vanti eitthvað í þessa heildarmynd. Börn segja kannski þá sumir en hvað svo þegar börnin koma og mér líður eins? Þá er ég í sama pakkanum nema búin að bæta við einhverju öðru til þess að hafa áhyggjur af.
Hvað gerir maður þegar maður getur ekki skýlt sér á bakvið fitu lengur?

5 comments:

Smill sagði...

Heyrðu þetta er ekkert mál - maður bætir bara við ca. 2 börnum, drífur sig í skóla og heldur að maður sé ómissandi á öllum stöðum, lofar að vera heimsins besti kokkur með hreinasta heimili jarðarinnar og þykist eiga 13 áhugamál og stilltustu börnin í hverfinu.

Lofa þér að þá hefur maður engann tíma til að spá í svona. Árangur? huh...er það eitthvað ofan á brauð? ...thíhíhí

Nafnlaus sagði...

Ussss.

Ágætlega sæt...susss.
Þú ert svoooo sæt :D hehe.

Án gríns. :)

En ef þið vantar að athuga hvort það vanti börnin, þá endilega skelltu þér bara í heimsókn ;) getur passað fyrir mig.

LOL

Gangi þér annars voða vel, þú átt eftir að finna úr þessu, efast ekkert um það.

Ha det.
Eva

Iðunn sagði...

Held að þetta sé "always wanting more" fídusinn í okkur mannfólkinu... Það skiptir ekki máli hvað við eigum okkur langar alltaf í meira. Flottari bíl, fínna heimili, fleiri ketti etc... Held að við þurfum bara að vera nægjusamari við íslendingar =O) P.s til HAMINGJU með FRÁBÆRAN árangur..

Barbie Clinton sagði...

Þetta er þjóðfélagssyndrome. Tek undir með Smill nema bæti við að þú verður að vera í 150% starfi með skólanum, fara í ræktina 6x í viku, vera í Rótarý félagi, á kafi í hestum og formaður foreldrafélagsins.

Smill sagði...

Nei, ég tek þetta til baka - blessuð, slepptu börnunum. Þurfti að þrífa fína nýja hvíta sófasettið í gær þar sem örverpið hafði ákveðið að sófinn væri flottari skær gulur. *note-to-self* Áherslupenni er jafnvel erfiðari en rauðvínsblettur í sófa.

Kv. Smill...illt í skrúbbleggjunum.