föstudagur, september 29, 2006

Ónýt tölva

Já það hlaut að koma að því, tölvan dó.
Fékk nýja eða reyndar tvær nýjar! Múahahahahah!

Lalli gaf okkur eina og svo af því að ég er svo sæt fékk ég lappa.
Svo núna get ég legið í rúminu og glápt á eitthvað sniðugt sem ég hef dl. Já, því núna get ég loksins "hlaðið" niður tónlist og dótaríi. Sem er náttúrulega helber snilld. En ég geri mér grein fyrir því að ég er bófi. Já só?

Annars vinn ég og sef. Og já núna er ég loksins farin að fara í ræktina. Það er bara helvítis gaman sko, hverjum hefði nú dottið það í hug. Og þolið sem ég hef, maður minn! Gæti átt heima á skíðavélinni bara! Eða eitthvað...

Finnst annars töff að NFS lokaði, því núna fæ ég að sjá sápurnar á Sirkus. Jess!

Já og ég elska þá staðreynd að það sé komið haust.
Þegar maður kemur út á morgnana og maður andar gufu, loftið krispí tært og maður þarf helst að vera með vettlinga og trefil. Geggjað. Elskaða.
Hlakka til vetrar, og jóla og snjós (ef hann ákveður að kíkja á okkur þennan veturinn)
Hef aldrei verið spennt fyrir vetrinum en núna er þetta eitthvað öðruvísi, kannski af því að núna kemst ég í einhverjar úlpur? Og lít kannski ekki út eins og fífl með húfu.

7 comments:

Sir peealot :O) sagði...

Hvar ferðu í ræktina Jóna Mjóna?? :O)

Overmaster sagði...

Hreyfing mar, kemuru með?

Barbie Clinton sagði...

Gaman að skjá þig aftur.

Sir Peealot sagði...

Ég er í WC eins og er en það er alveg spurning um að færa sig yfir, þoli ekki þessa "tönnuðu og skornu" fm píkur :O( Gives me the chillz!!!

Overmaster sagði...

Það er líka hallærislegt að vera í "WC" eins og maður sé alltaf fastur á klóstinu!

Nafnlaus sagði...

hehe. svona i alluru ta helt eg ad tad væri verid ad tala um ad hann/hun væri a klosettinu. LOL

En flott med nyju tolvuna, gratulerer med tad.

En eg meina, sir pee a lot i wc, lol.

KV
Eva

Overmaster sagði...

Hahahahah meikar sens Eva!
Fattaði ekki einu sinni tengslin við nikkið ;)