fimmtudagur, september 07, 2006

Já.
Eyddi nokkrum núllum í Kaupinhávn. Djöfull var það gott.

Svo fór ég í súpermarkað á sunnudaginn. Af því að ég er hagsýn húsmóðir keypti ég 6 stk af kjúklingum. Fór með þá heim, setti í frystinn. Taldi þá og hmm, vantar einn? Ah, ég hef bara gleymt honum í búðinni.
Í gærmorgun labbaði ég út í bílskýli, var einmitt að tala um við manninn minn hvað þessi bíll sé nú bara æðislegur og hvort það sé ekki bara sniðugast að keyra hann út. Opna bílhurðina og á móti mér rýkur þessi óóógeðslega ýldufýla. Alger nálykt.
Helvítis kjúklingurinn gleymdist í skottinu!

0 comments: