
Átti afmæli um daginn og hélt partí/getttúgeðer í gær. Var full. Er þunn.
Fékk ótrúlega fyndna, góða, gæðalega og skemmtilega pakka. Þar á meðal nunnuhettu. Eitthvað misskildu mínar dásamlegu vinnufélagavinkonur kynlífsfetishin mín, hefði frekar viljað hjúkkudót, en þetta dugar.
Mikið hlegið, mikið drukkið og mikið reykt.
Klippti svo síða hárið í gærmorgun. Finnst ég bomba núna.
Eftirfarandi mynd er því til sönnunar ( fyrir ykkur sem ekki hafa séð mig er ég þessi ljóshærða).

4 comments:
Segi það og skrifa það - Bomba! Til hamingju með daginn!
Ekki ertu ad vinna i evans??
kv ein sem tekkir tig ekkert...
Hahahahah góður Ella ;)
Ja, hérna , það er þetta með suma daga, annaðhvort er það upp! eða niður! Það gerir veðrið! Skreppa á bókasafnið , fá sér nýja bók eða mála eitthvað fallegt við góða tónlist. Guess who?
Sendu inn athugasemd