þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Meiri útlönd

Jájá, mín bara heimsborgari.

Ætlum að fljúga til Köben á fimmtudagsmorguninn og vera fram á mánudag. Þvílíkt yndislegt. Hlakka mikið til að fara þangað aftur en við fórum síðast þangað í fyrravor. Get ekki beðið eftir að sleppa af mér beislinu í H&M eins og sönnum íslenskum konum sæmir.
Ef einhver verður vitni af útfríki í dömudeild H&M næstkomandi helgi þá er það ekki ég. Ok?

Svo ætlum að við að gera fullt töff og skemmtilegt, en þarsem við vorum semi upptekin við vinnu ofl. síðast þegar við fórum vitum við ekkert í okkar haus.
Svo allar tillögur eru vel þegnar.

3 comments:

Barbie Clinton sagði...

Bara hanga, skoða fólk, reykja Prins og drekka mikið. Detta bara í danann. Það er best. Góða ferð!

Overmaster sagði...

Nákvæmlega fílíngurinn sem við tileinkuðum okkur. Alveg dásamlegt :)

ella fallega sagði...

FERÐASÖGU TAKK FYRIR :) djöfull myndi ég ekki vilja vera vísakortið þitt eftir þessa ferð, skaðbrennt af ofnotkun