fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Kaupæði

Það er runnið á mig kaupæði. Á háu stigi.
Kaupi og kaupi og kaupi og já mig vantar þetta allt saman, flest amk.

Var einmitt að kaupa bráðnauðsynleg leðurstígvél á 20.000.- Gat bara ekki séð mig fyrir mér lifa án þeirra.
Keypti líka í dag eftirfarandi: Pils, tvennar buxur, eyrnalokka, hálsmen, nærbrækur, bol og það er bara auk vöruúttektarinnar sem ég fæ mánaðarlega í vinnunni sem innihélt pils, bol og buxur. Sick?
Og þetta er bara það sem ég verslaði í dag! Ég verslaði líka í gær og hinn og hinn...
Sjitt og ég sem er að fara til Danmerkur í enda mánaðarins og var búin að lofa mér að sleppa mér þar? Nei ég held að ég þurfi nú aðeins að fara að róa mig niður í þessum málum, einbeita mér frekar að því að fara í tívólí og éta kengúrur.

Annars er þetta kannski eitthvað sem ég ætti ekki að hafa samviskubit yfir. Ég hef s.s nú þegar lést um ca.bát 50 kg á síðasta rúma ári. Ég er bara að upplifa mig sem svo mikla skvísu nefnilega. Tilfinningin að geta labbað inn í búð og keypt það sem manni finnst fallegt en ekki af því að það passar er ansi notaleg, kannski einum of notaleg en ég er dálítið að bæta upp það sem ég hef misst af í gegnum tíðina.

Nýja mottóið mitt: Égmáðaalveg!!

2 comments:

Barbie Clinton sagði...

Til haaaamingju með nýja dótið! Nauðsynlegt að kaupa oft því maður er svo hamingjusamur ´ameðan og í smá tíma á eftir:)

Lindablinda sagði...

Þú mátt það skooo alveg - Gott hjá þér!! Dulle stelpa.