mánudagur, júlí 17, 2006

Ótrúlega myndarleg

Er búin að baka tvö brauð, setja á mig brúnkukrem og troða upp í mig hvíttunargóminn. Ástæða?

Ég er komin í skvísuvinnu. Ég má mæta ógeðslega sæt og fín og flott í vinnuna og það er bara eðlilegt. Fæ að ganga í skvísufötum á hverjum degi, brosa og vera sæt. Alveg ég. Alveg að fíla mig.

Búin að vera á Mæjorka þar sem ég náði mér í sólarexem, þessvegna varð ég ekkert brún. En ég verð það svosem aldrei, er hálfur rauðhærðingur þó ég sé það ekki beint sjálf. Er bara með svo ljósa húð, verð einhvernveginn svona hunangsgul. Og það alveg í viku og svo hverfur það. Drasl.

En núna er ég s.s í fríi frá skvísuvinnunni minni. Fékk bara þriggja daga helgi takk fyrir og hef gert mest lítið annað en að slappa af.

Fór í fyrrakvöld til mömmu. Hún er bara alveg svakaleg, bara búin að fá sér allt nýtt. Nýtt hús, nýja vinnu, nýjan hund og nýjan bíl. Það er bara varla að maður þekki hana lengur ;)
En nýji voffinn er æði, mígur bara á gólfið, ræðst á nýja boltann sinn og sefur þess á milli. Alveg magnaður. En ég myndi nú ekki vilja fá mér hund. Held að það sé bara vesen. Allavega voru þau eitthvað voðalega þreytulega að sjá þarna í sveitinni.

Já svo ætla ég bráðum að fara út í skipulega hreyfingu. Mister eiginmaður (fyrrverandi unglingameistari í badminton) ætlaði að kenna mér listina en vitiði hvað 50 mínútur kosta í TBR?? 1910 kr!! Glætan! Þetta er bara rán!
Þá verðum við bara úti í garði það sem eftir er sumar, í þau fáu skipti sem það lægir eitthvað. Drasl.
Held ég kaupi mér bara sjálf lóð og fari út í að skokka. Er það ekki bara töff bissness?

2 comments:

Nafnlaus sagði...

Super color scheme, I like it! Good job. Go on.
»

Lindablinda sagði...

Ég er líka fyrrverandi unglingameistari í badddminngton?