Svona er hægt að útskýra rangstöðu fyrir konum sem skilja ekki fótbolta...
Þú ert stödd í skóbúð og ert önnur í röðinni við kassann. Í hillunni á bakvið afgreiðslustúlkuna eru skór sem þú bara verður að eignast.
Konan sem er fyrir framan þig í röðinni er einnig búin að koma auga á skóna og horfir á þá löngunaraugum. Báðar eruð þið hins vegar búnar að gleyma peningaveskjunum ykkar. Það væri dónaskapur að ryðjast framfyrir konuna ef þú ert ekki með neinn pening til þess að greiða fyrir skóna.
Afgreiðslukonan bíður við kassann.
Vinkona þín er að máta aðra skó aftar í búðinni og sér í hvaða vanda þú ert stödd. Hún undirbýr að kasta til þín veskinu.
Ef hún gerir það getur þú gripið veskið og labbað framfyrir hinn kúnnann og keypt skóna!
Einnig gæti hún kastað veskinu framfyrir röðina og "á meðan veskið er á flugi" gætir þú skotist framfyrir hina konuna og gripið veskið og keypt skóna!
EN, þú verður að muna að áður en búið er að kasta til þín veskinu væri það hreinlega rangt af þér að troðast fram fyrir í röðinni og þú værir...........
RANGSTÆÐ!

2 comments:
Great site loved it alot, will come back and visit again.
»
Fyrsta skipti sem ég fatta þetta!! Gleði - :-)
Sendu inn athugasemd