laugardagur, júní 03, 2006

Þokkalega að fara til Mæjorka!

Jáh, með ógeðslega stuttum fyrirvara pantaði ég miða til Mæjorka handa mér og bóndanum.

Langaði bara í plebbasól, sand og alvörunni sangríur. Held ég finni svoleiðis alveg örugglega þar!
Verðum í tvær vikur og förum á þriðjudaginn. Er ekki örugglega kominn þriðjudagur? Nei demit. Get ekki beðið.

Komin með nóg af skítakulda og trekki hérna. Alveg gersamlega. Er ALLTAF skítkalt!
Svo er náttúrlega týpískt að það verði gott veður alveg næstu tvær vikur! Hrmmpff!

Sótti hjólið mitt í gær, fór þangað sem ég átti heima fyrir tja, hálfu ári síðan. Var alveg sannfærð um að það kæmist fyrir í bílnum ef við legðum sætið niður, nei... Við þurftum að keyra með skottið opið alla leiðina úr Vesturbænum og hingað uppeftir. Smá trekkur :S
En svo þurftum við að pumpa í dekkin og þegar ég svo loksins settist á það og mátaði, þá fann ég að einhver hafði greinilega verið að nota það. Sætið var miklu hærra en ég hafði það, náði varla niður á pedalana! Iss.. skítapakk að hjóla á ókunnugu hjóli!

5 comments:

Nafnlaus sagði...

Ég hjólaði einu sinni um á hjóli sem ég taldi vinkonu mína eiga. Þar til ég komst að því að svo var ekki. Úpps. E rosalega góða ferð og skemmtun. Öfunda miiikið. Hekl og smyrn

Nafnlaus sagði...

æj....Íslandið hefur 9 daga til að safna í gott veður fyrir mig. Tek sko ekkert annað í mál...eða sko ég er alveg sátt ef það verður gott hjólaveður þegar ég kem heim.

Góða ferð til Mæjorka. Góða sangríu. Ég öfunda þig ekki neitt...neinei...mig langar sko ekkert í ekta sangríu...!

sjáumst skvís!

Begga.

Nafnlaus sagði...

Herðu vinur minn

Það var greinilega bara einhver sem fannst hjólið þitt vera svona svaklega töff að hann hefur ákveðið að prufa djásnið... ég meina hmmmm hálft ár!!!!!!!! hvað eiga grannarnir að halda;) einhver komst í feitt þarna.... he he Jæja nú get ég farið að kalla þig FRÚ VALLA Á HJÓLINU... BWAHAHAHAHAHAH...

Kv: Erlitzzz

Barbie Clinton sagði...

Ertu endalaust í útlöndum?

Nafnlaus sagði...

Very pretty site! Keep working. thnx!
»