Sjúkk! Gleymdi mér alveg í sumrinu! Þar sem ég er orðin næstum mjó, komin með hvítar tennur og orðin kókólaði brún þá hef ég ekki alveg eins mikinn tíma fyrir blogg sjáiði til. Eða þannig.
Búin að hanga í heitum potti alla vikuna og væri þar líklegast núna ef eigandi pottsins hefði ekki þurft að mæta til vinnu. Helvítis.
Er alveg að missa mig af tilhlökkun til morgundagsins. Þá kemur minn heittelskaði eiginmaður úr vinnuferð að utan en það sem meira er, og hlakka meira til (ég meina maðurinn er ekkert búinn að vera lengi úti) er að hann dregur litla krúttbróður minn með sér (sem er samt alveg 22 ára) sem er búinn að vera í útlegð í allan vetur. Jeiiiijjj!
Við litli bróðir erum nefnilega "læk ðiss" (krossa puttana og dreg annað augað í pung)
Má maður borða ís klukkan tíu að morgni? Nei bara spá.
Langar ógeðslega til þess að eiga garð og heitan pott. Langar bara í einn lítinn pott, ekkert flókinn, ekkert pott sem kostar á þriðjumilljón með ljósasjóvi og dúndrandi fm tónlist í botninum. Nei bara einhvern sem getur látið renna í sig heitu vatni og mögulega útúr honum aftur, ekkert flókið sko.
Svo var okkur boðið að fara til Flórída næsta sumar, eða reyndar ekki alveg boðið BOÐIÐ heldur bara svona boðið að fara með vinum og get fengið ódýra heimagistingu. Þáði boðið strax án þess að spyrja eiginmanninn, en hey, ég er nú ekki konan hans fyrir ekki neitt, veit alveg að hann myndi segja já, sem og hann gerði... og hann er farinn að hlakka meira til en ég ;) EN þetta er alveg eftir ár svo við höfum alveg nægan tíma til þess að láta okkur hlakka til.
Svo tökum við allan júní í útilegur og þvíumlíkt skemmtilegt. Einhverjar tillögur hvert er best að fara? Að sjálfsögðu fer ég þetta klassíska, allavega Búðir og Ásbyrgi... mögulega Mývatn.
Oh get ekki beðið, elska sumar!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

6 comments:
keyrið vestfirðina...mjööög flott þar...og fullt af eyðibýlum og dölum sem hægt er að tjalda og hafa það kósí eins og Palli sem var einn í heiminum. Ég fór þarna sumarið nítíuogfjögur í viku að ferðast þarna um, fer pottþétt í sumar líka!
annars finnst mér bara skemmtilegast að finna skemmtilega tjaldstaði...uppá fjalli, inní dal...eða rollugirðingu ef svo fer *hóst*.
begga.
Sammála. Vestfirðirnir eru mecca Íslands. Hekla
Hahahah, snillingur! En já við vorum einmitt að spá í vestfirðina, eða ég allavega, maðurinn minn er ekki alveg á því, enda vestfjarðafælinn mjög. Er að vinna í þessu...
Hey Hekla, hvað varð um þig og bloggið þitt? :)
hvað er þetta!! Segðu honum að það er búið að bæta vegina ansi mikið síðan nítíuogfjögur...og keyra firðina í þá átt að þið eruð hægra megin þegar þið mætið bílum í bröttum fjallshlíðum hehehe!!
begga.
Vestfirðirnir eru Ísland.
Ein að vestan.
Great site lots of usefull infomation here.
»
Sendu inn athugasemd