fimmtudagur, maí 18, 2006

Held að Silvía Nótt eigi eftir að gera okkur að fíflum þarna, ókei við erum reyndar fífl (íslendingar þ.e) en æji, á manni ekki bara að vera drullusama um þetta? Hún er bara svo svakaleg gellan!

Er að undirbúa atvinnuleit. Er að gera ótrúlega flotta og stílhreina ferilskrá og fer svo á fullt í júní að leita. Allir vilja nefnilega ráða bara strax, núna, pronto... Hélt oft að það væri gefinn smá fyrirvari en já ég má s.s byrja að vinna 1.júlí. Of langt þangað til, leiðist...
En það verður nú samt gaman að fara í allar útilegurnar á meðan ég bíð.
Ef þið hafið einhver góð ráð hvað varðar atvinnuleit og umsóknir eða það sem betra er, einhverja almennilega, vel borgaða vinnu þá eeeendilega láta mig vita ;)

5 comments:

Nafnlaus sagði...

úúú...ég er einmitt í sama pakka. Gaman gaman! Held að málið sé bara ð hafa þetta skýrt og laggott, stíla inn á fyrirtækið þar sem þú sækir um, ss breyta umsóknum aðeins eftir hvar þú sækir um. Einblína á þá kosti og reynslu sem hver vinnuveitandi sækist eftir. Velja letur vel. Prenta út á góðan pappír. Stíla bréfið á einhvern ákveðinn. Auðvitað láta svo trilljón fórnarlömb lesa yfir svo engar villur séu. Ekki meira en 1-2 bls. Undirrita svo.

Skrifa svo bara gott cover bréf með umsókninni. Smá glósur úr cv fyrirlestri sem við fengum í skólanum...um cover letterið.
1)WHY WRITING
-what interests you about job / company?
-What are you looking for?

2) WHY YOU?
-relavant skills
relevant experience
-enthusiasm

3)CONCLUSION
-What you want to hapen next?
-availability

Og svo kannski taka smá stjórn með því að segja að þú hafir samband á næstu vikum....

gangi þér vel pæjos!! Og mundu að ekki draga úr hæfileikum þínum!!:)
begga.

Overmaster sagði...

Takk skvís! Þú ert best ;)

Nafnlaus sagði...

Ég er með meirapróf í CV gerð og doktorsgráðu í gerð atvinnuumsókna. Án gríns. Hekla

Overmaster sagði...

Þá hlýtur þú að getað bætt við einverri visku erhaggi? ;)

Nafnlaus sagði...

What a great site, how do you build such a cool site, its excellent.
»