... en samt ekki nennt að blogga.
Enda gerist ekki mikið þegar maður hangir einn heima hjá sér.
Ég gæti svosem sagt ykkur hvernig veðrið er, á 10 mínútna fresti.
Talað um kettina mína 2.
Eða talað um hvað rykkanínur myndast fljótt, bara rétt eins og hendi væri veifað og auga blikkað. Ég gæti jafnvel haft beina útsendingu frá atburðinum, s,s rykkanínumynduninni.
Nei þá kæmi örugglega að því að ég yrði lögð inn, á ranga deild :S
Þyrstir í sumar.
Pils, sandala, óáfengar sangríur (Já Hemúll, þær geta alveg verið það!) sól, útilegur, grill og grillveislur í görðum, hvítvín, bjartar nætur... Ég hætti áður en ég verð væmin.
Þetta hlýtur allt að fara að koma
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

2 comments:
Já endilega gerðu heimildarmynd um rykkanínurnar! Hahaha
Kíki á þig fljótlega skvís, ef til vill með nokkrar rykkanínur frá minni íbúð og vonast til að þær taki sér fasta búsetu í þinni í staðinn. ;)
Óáfengt!
Hver er tilgangurinn með því að drekka það?
Ertu kannski hamingjusöm? Hef heyrt að hamingjusamt fólk drekki stundum óáfenga drykki?
Sendu inn athugasemd