1. hluti.
Daman mín...
... er svo ótrúlega mikill dömuköttur að ég hef aldrei heyrt eða séð annað eins.
Henni finnst alveg geðveikt að fylgjast með mér plokka á mér augabrúnirnar, greiða mér, tannbursta mig, þjala á mér neglurnar... allt svona konudót finnst henni æðislegt. Uppáhaldið hennar er þó þegar hún liggur í vaskinum á meðan ég mála mig. Hún fylgist með af mikilli athygli og langar greinilega að fá smá.
Hún drekkur helst ekki vatn úr dalli, glas, blómavasar, bollar og kraninn inni á baði eru þær uppsprettur sem hún kýs helst.
Hún er díva, verður auðveldlega pirruð á yngri "bróður" sínum, finnst hann ógeðslega hallærislegur og mikill auli. Hún passar virkilega vel upp á það að vera vel pússuð og snyrt.
Hún er gáfuð. Svo ótrúlega að hún hræðir mig stundum.
Hún veit nákvæmlega hvernig á að færa gardínurnar þegar hana langar að fara upp í gluggakistu. Það þýðir ekki að fela neitt fyrir henni, hún veit alltaf hvar hlutirnir eru. Þá erum við ekki að tala um mat hérna, heldur bara kóktappa og einhverja litla ómerkilega hluti. Hún er þá líka virkilega stríðin. Náttborðslampinn er með svona dinglandi keðju og stálkúlu á endann, þar s.s kveikir maður og slekkur. Hennar uppáhald er að vekja mig á næturnar með því að slá í þetta dingl í lampafótinn sem er úr stáli og búa til þvílíkan hávaða. Hún glottir þvílíkt þegar hún gerir þetta, og ástæðan? Jú, ég á að færa hausinn á mér svo hún geti fengið hornið "sitt" til þess að sofa á!
Hún á líka barn. Ég er s,s amma.
Þetta er lítil hvít mús sem hún gefur að borða, svo drekka og þá loks þrífur hún kvikindið og fer að leika við það. Þá á ég við að hún hendir kvikindinu í matardallinn, lætur það vera þar í nokkra stund, setur það svo í vatnsdallinn og veltir því þar um dágóðan tíma, tekur það svo uppúr og sleikir það þurrt.
Hún er pínu kreisí en hún er loðbarnið mitt :D
May I present...
Lady Miss Klara

5 comments:
Voðalega er hún falleg. Mín prinsessa er að breima að ég held ogég er að því komin að skjóta hana. Líður ekki mússímúss.
Þessi var svakaleg þegar hún breimaði. Hún gerði það bara einu sinni þessi elska, hún var send beinustu leið til læknisins í "klippingu" eftir þá þolraun.
Að sjá þær skríða titrandi á gólfinu með p***** út í loftið öskrandi á næsta tippi... Ég gat bara horft uppá það einu sinni.
o hvað hún er mikil bjútíkvín...og greinilega hefðardama hér á ferð. Pant fá að knúsa hana í sumar!
begga.
P.S. ég setti líka inn mynd af "málmbarninu", sem ég ætla að fá mér, á bloggið mitt í dag...tilviljun??
begga.
Mjög falleg - fær mig til þess að sakna þeirra 17 katta sem ég hef átt í gegnum tíðina.
Sendu inn athugasemd