Spottaði gamla vinkonu á spjallvef í dag. Svolítið skemmtilegt verð ég að segja. Skemmtum okkur vel yfir fitubollumyndum, rollusögum og endaþörmum. Seinómor.
Er alltaf að reyna að muna að ganga með litla vasabók, því ég held að tölvan sjúgi úr mér allt vit.
Er með höfuðið fullt af gáfulegum hugmyndum af bloggum, ótrúlega málefnaleg að sjálfsögðu, gagnrýnin og hnyttin en þegar ég kveiki á tölvunni og Firefox að starta upp Blogger þá gerist eitthvað. *Púffff!!* Höfuðið tæmist og eina sem mér kemur í hug er kvart og kvein, eða hrein og bein leiðindi.
Ætlaði að vera pólitísk, háðsk og töff. En það týndist.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

3 comments:
Kannast við þetta! :S
Me to...
þúrt samt megatöff.
begga.
Sendu inn athugasemd