sunnudagur, mars 26, 2006

Skrítið þetta að finna allt í einu til kvíða. Fá líkamlegu viðbrögðin en fatta kannski ekki af hverju?
Hef sofið illa, með höfuð og magaverki og á það stundum til að verða andstutt.
Fattaði ekki strax að líkaminn er að fríka út meðan hugurinn var ekki alveg að fatta það.
Ferlega skrýtið þegar líkami og hugur aftengjast með þessum hætti.

Þá fór ég bara í slökun og sund og þannig og þá varð þetta strax mikið betra.
Ekki það að ég viti ekki af hverju ég er kvíðin heldur kom þetta bara svolítið aftan að mér.

Og af þessum sökum verður ekkert bloggað frá Þriðjudeginum 28. mars og allavega næstu vikuna á eftir.

----------------------------------------------------------

Ég á erfitt með að henda dóti. Það hefur komið fram hér áður en þetta er farið að verða vandamál. Er með nokkra kassa fulla af dóti sem ég hef ekkert að gera við en vill samt ekki henda. Svo þannig er að eitt herbergið er fullt en þarf kannski ekki endilega að vera það.
Og akkúrat þetta herbergi átti að vera svona "tómstundaogkósíherbergi" frúarinnar á heimilinu.

Ef ég fæ góðar hugmyndir um hvernig ég eigi að innrétta það þá kannski verð ég mótíveruð að henda dótinu? (Ég blikka hér með ákveðinn innanhúsarkitekt *blikkblikk*)

4 comments:

Smill sagði...

Gúdd lökk á þriðjudaginn skvísí!

Overmaster sagði...

Þeink jú beibí ;)

Hekla Von Gartendorf sagði...

Sakna þín strax.

Nafnlaus sagði...

mjá....eða ég get líka bara tekið dótið...er að pæla að verða geymsluarkitekt svo ég geti hirt allskonar dót úr geymslum hjá fólki hehehehe!! ...Annars tökum við þokkalegt kreatívt session þegar ég flyt heim í sumar:)

Æ vill miss jú skvís. Gúd lökk:)

begga.