laugardagur, mars 18, 2006

Er að mála. Ógeðslega frústreruð, trönurnar ónýtar og allt að hrynja í gólfið. Arg!
Svo veit ég ekki hvernig málverkið á að enda. Það er mesti bömmerinn. Eins og að fá ritstíflu, nema bara verra. Striginn er ógeðslega stór, eða 50x150 og það er svolítið erfitt þegar allt fer að hrynja.
Ógeðslega pirrrrrrruð!!!
Á að vera að elda þar að auki.
Djöfuls vesen er þetta alltaf hreint.
Á að vera að þrífa.
Á að vera fyrirmyndarhúsmóðir fyrir kaffiboð en það eru ennþá pissuslettur á klósettskálinni og rykkanínur í hornum og ég get ekki einbeitt mér að neinu nema máleríinu núna.
Langar að fara alla leið og fá mér rauðvín, sígó og alpahúfu.

Kannski fáið þið að sjá afraksturinn, kannski.

0 comments: