fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Handlagin húsmóðir

Fór í gær og keypti 2 náttborð fyrir tvöþúsundkall.
Eyddi svo gærkveldinu í að pússa þau upp og grunna, alveg ótrúlega skemmtilegt.
Maðurinn keypti meira að segja juðara handa mér, tæki sem mig hefur dreymt um að eignast leeengi. En svakalega mikil hætta á heilahristing, get sagt það :S

Hlakka ótrúlega til að taka eldhússinnréttinguna í gegn og pússa parketið og allt það. Færslan mín sem segir hvað ég er búin að vera dugleg hvarf að mér skilst. Einkennilegt.

Langar að taka þátt í hraðakeppninni á ljosmyndakeppni.is en ég er algerlega dauð af hugmyndum.
Ef einhver hefur ótrúlega góða hugmynd af diskóþema, og getur póstað henni innan hálftíma þá er það vel þegið.
Þið hin megið fara í rassgat.

4 comments:

Nafnlaus sagði...

...its so dark in here...and there is this strange smell...

Begga

Þórhallur sagði...

Fer í rassgat... á alveg heima þar.

Hekla Von Gartendorf sagði...

Vantar svo að láta pússa hillur...

Iðunn sagði...

ég þarf víst að fara í rassgat....er búin að búa til síðuna ;O) múhahahhahaha