laugardagur, janúar 21, 2006

Þoli ekki fólk með fullkomið hár. Er þetta bara heppni eða eyðir fólk virkilega öllum þessum tíma í að fínisera á sér lubbann? Óþolandi!

Já og af hverju hlustar fólk ekki á Salsatónlist, dansa kannski smá og fengi sér svo Sangriu í hríðarbyl og viðbjóði? Ég er viss um að skammdegisþunglyndi væri á undanhaldi ef fólk gerði þetta reglulega. Salsapartí í janúar.

Peningaeyðsla. Ég hata peninga og hata að geta ekki átt þá. Af hverju get ég ekki bara skoðað heimabankann með bros á vör og gert svo ekkert í málinu í stað þess að fara með fyrstu ferð í annaðhvort mollið í örvæntingarfullri leit að einhverju sem mig vantar.
Er ég kaupalki?
Vantar ótrúlega nýjar buxur af því að allar hinar eru orðnar of stórar, vantar þá geðveikt nýja skó við nýju buxurnar því þær passa ekki við neitt sem ég á. Einmitt svo vantaði mig geðveikt nýjan maska og andlitskrem. Einmitt. En sniðugir eyrnalokkar, myndu gersamlega fullkomna heildar útlitið með nýju buxunum og skónum. Nú bara 50% afsláttur, ég skal segja ykkur það, þetta kostar kannski mikið núna en vááá ótrúlega var þetta dýrt, kostakjör... Ég er bara að græða hérna á fullu ef ég kaupi þetta núna. Ji hvað ég er sniðug.
Nýtt gloss myndi nú gera mikið fyrir mig, hvar ætli hin 974 glossin séu? Æji ábyggilega týnd í öllum 346 töskunum og veskjunum sem ég á.
Best að fá sér þá bara nýja tösku undir nýja glossið. Nú er ég alveg örugglega fullkomin.
Nei hentu bara miðanum. (Feldu sönnunargögnin)

6 comments:

Smilla sagði...

OMG...ertu eitthvað skyld mér? Er nákvæmlega svona...kaupalki!

og eitt...ÞÚ!!! ert með fullkomið hár alltaf!

Þórhallur sagði...

er laumu kaupalki. Játa það bara hérna.

Hekla Von Gartendorf sagði...

Ég er opinber kaupalki og finst það frábært! Fullkomið hár er lummó svona bæþevei.

Overmaster sagði...

Nei ekki þegar það er á mér :)

Nafnlaus sagði...

Ég heiti Begga og ég er sjoppaholik.

Get ég nú byrjað batann??

Sjitt, ég er að fara til New York.

Overmaster sagði...

Byrjaðu bara batann eftir að þú kemur til baka? :D