Já af því að ég ætla aldrei aftur að reykja og ætla því að verðlauna mig með því að láta hvítta tennurnar í mér. Og af því að ég verð búin að láta hvítta þær að þá tími ég aldrei aftur að reykja.
Mér finnst rauðvín og kaffi vont svo það hefur engin áhrif.
Getur maður fengið hausverk af súkkulaði?
Er ekki með mígreni... but makes me wonder. Stevie Wonder?
Er líka búin að horfa ógeðslega mikið á CSI og 4400. Þeir síðarnefndu eru ógeðslega spennandi en smám saman missi ég athyglina. Skrítið? Hef aldrei verið góð í sjónvarpsmálum, er alltaf farin að gera eitthvað annað ef spennulevelið fer undir ákveðin mörk. Er ég með athyglisbrest?
Held að Hekla sé byrjuð að reykja aftur og þori ekki að segja mér það. Múaahhahaha.
Er líka með fullkomnar neglur, fullkomið hár og verð bráðum ógeðslega mjó. Mikið ógeðslega vantar mig bara að verða fræg.
Fyrir hvað ætti ég að verða fræg?
Vá. Sjitt.
Ég verð að hugsa mig aðeins um.
Tillögur líka velkomnar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

6 comments:
Þú verður fræg fyrir að vera með ógeðslega flottar neglur, ógeðslega flott hár og alveg ógeðslega mjó. Það er alveg borðleggjandi.
Neiii, það er ekki hægt að vera fræg fyrir það sama og frú Beckham!
Iss jú. Og neibb er sko ekki byrjuð aftur!! Og finn ekkert fyrir þessu. En ég er með hvítar tennur lalallalala. Fínt dót sem ég keypti í NY og hafa þær alveg haldið sér en að vísu bursta ég 5 sinnum á dag... Ef það kæmi ísöld þá myndir þú deyja fljótt ef þú ert mjó. Langar neglur eru ópraktískar og góðar á bragðið. Flott hár. Já við getum það. Fáum okkur Capri.
Hummm... minnir mig á konu sem ég þekkti einu sinni... nó um það.
Mæli með því að þú verðir frægur bloggari, þeir hafa forgang í biðröðinni á Sirkús.
Ég er að spá í að koma með þér í hvítningaraðgerðina þá reykjum við aldrei aftur saman :O) how you like that my friend??! :O)
Ójá, það er sko ótrúlega gott plan mín kæra!
Sendu inn athugasemd