Eyddi deginum í spjall við góða vinkonu. Frábær dagur. Fólk ætti að gera þetta oftar, að spjalla bara saman án þess að vera með eitthvað föss í kringum það, án þess að hafa einhverja sérstakt tilefni eða ástæðu, án þess að hafa vín um hönd og án þess að bjóða upp á osta. Án þess að hafa eitthvað til þess að fela sig á bakvið. Lov jú.
Ég elska það þegar fólk afhjúpar sig, þá fæ ég innblástur til þess að gera það sama. Þá finnst mér einhverra hluta allt í lagi að vera berskjölduð. Viðurkenna ófullkomleika minn og mistök. Þá er ég svo mannleg.
Ég er nefnilega dálítið mikið fyrir það að reyna að vera fullkomin og gera allt fullkomið. Er það af því að ég er meyja eða er það af því að ég er bara svoleiðis persónuleiki?
Og af því að ég er ekki fullkomin og af því að ég get ekki gert allt rétt að þá á ég til að refsa mér fyrir það. Þá finnst mér ég ekki standa jafnfætis öðru fólki, s.s annað fólk sé betra en ég og geri hlutina betur.
Ég er alltaf að reyna að læra að það er allt í lagi að fara út í búð ómáluð með úfið hár. En ég á svo bágt með það. Ég veit alveg að svona hlutir eiga ekki að skipta máli en þeir gera það samt.
Og af hverju mér tekst ekki að lifa fullkomnu lífi? Svo er nú það, hvað er fullkomið líf?
Er það eitthvað sem einhver annar hefur troðið inn í hausinn á mér að lífið ætti að vera eða er það bara ég að ná ekki markmiðum mínum?
En kannski er ég á réttri leið með því að viðurkenna vandamálið?
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

5 comments:
Ég var líka lengi að læra það að það er í lagi að fara út í búð án þess að hafa sig til. Það er samt erfitt að brjóta ísinn með það.
umm...það er af því að þú ert meyja...og held að þú eigir aldrei eftir að geta skilið alveg við áráttuna að fullu...meyjan í manni er svo sterk....grrr....skakkar gardínur NEI...skakkar myndir NEI...gerir mann alveg brjál....skakkt hár NEI....hahahahaha..mér bara líður illa að fara út með skakkt hár og beyglað andlit...hahaha...samt get ég alveg gert mig að fífli...það er alltílæ!!!
Begga meyja....arg.
ALDREI fara út í búð ótilhöfð!! Ávísun á að hitta gamla sénsa sem hugsa þá: Fúff hvða er gott að vera ekki með henni!!!
Baráttukveðja frá meju.
NEI,NEI,NEI,prentvilla.Haaaaata.
Baráttukveðja frá Meyju ekki meju, hvað sem það nú er.
Sendu inn athugasemd