fimmtudagur, desember 29, 2005

Orðheppni

Alltaf dáðst að fólki sem kann að koma fyrir sig orði.
Ég er nefnilega ekki svoleiðis. Ég er týpan sem dettur í hug eitthvað ótrúlega sniðugt ca. 10 mínútum eftir að það hefði verið töff að segja það. Bömmer.

T.d þegar ég rífst, þá fer ég bara í hringi og röfla og enda á því að labba bara burt. En alveg í sólarhring á eftir er ég röflandi í hausnum á mér með ótrúlega töff rökfærslur sem hefði verið ógeðslega töff að koma með, þá.

Æji.. Ég veit ekki.

miðvikudagur, desember 28, 2005

Ljósmyndabaktería


Er komin með veiki. Get ekki hætt að taka myndir.
Þetta er alveg agalegt en það fylgir enginn hiti með þessu því miður.

Hef verið að fikra mig áfram og ég verð að viðurkenna að þetta er ógeðslega flókið, en jafn skemmtilegt og það er nú flókið.

Er að fikta með Fótósjopp líka en bara þegar ég er heima hjá Settinu því tölvan mín er svo handónýt að hún ber ekki einu sinni forritið.
Skemmtilegt.

Ég er nú að reyna að læra fyrst á myndavélina sem ég á, en ég finn núna að mig vantar tilfinnanlega þrífót.

Held ég hafi samt ágætisauga?
Æfasigæfasigæfasigæfasigæfasig....

mánudagur, desember 26, 2005

Annar...

Er að fara yfirum í bókalestri. Held að maðurinn minn sé farinn að hafa áhyggjur af mér.

Sko.

Nú er annar í jólum sem þýðir að það eru 2 dagar frá aðfangadagskvöldi. Ég fékk 5 bækur og búin að lesa tvær þeirra nú þegar.
Þetta fer að verða áhyggjuefni og þarf mjög greinilega að fara að spara þær svo ég klári ekki alveg strax. Ég bara tími því ekki.

Fékk annars ótrúlega mikið af gjöfum. Eiginlega of mikið. Mætti halda að ég væri ennþá 7 ára. Hálfskammast mín þegar fólk spyr mig hvað ég hafi fengið, og það er ekki einu sinni eins og ég eigi þrjár fjölskyldur eins og meginþorri landsmanna. Jæja, en ég ætla allavega ekki að fara að kvarta yfir því!

Búin að éta alltof mikið og það má ég ekki. Er hætt. Eða næstum því.
Málið er bara það líka að ég er búin að pakka öllu sem maður notar til matargerðar og þá er maður að bjóða sér bara í mat hingað og þangað. Kannski var það heppni eftir allt saman að flytja á jólum.

Langar samt smá í snjó.

En langar ekki á Narníumyndina, sá trailer og þetta er eins og LOTR. C.S Lewis og Tolkien voru vinir. Það sést.

laugardagur, desember 24, 2005

Til hamingju með hátíðarnar!

*Veiflækðekvín*

Hafið það sem allra best um jól og áramót og munið að borða ekki of mikið af konfekti og passa að sprengja ekki putta eða augu.

Kannski pósta ég milli jóla og nýárs, kannski ekki svo það er betra að hafa varann á.

sunnudagur, desember 18, 2005

Sunnudagsmorgunn

Ég sit fyrir framan tölvuna ógeðslega úfin. Hárið á mér er í uppreisn, maskari út á kinn og brjóstin frjáls frá fangavist daglegs lífs (þ.e brjóstahaldara) Þið mynduð ekki vilja vera fluga á vegg núna, ónei.
Minn heittelskaði eiginmaður hentist út í bakarí að sækja rúnnstykki handa okkur og á meðan ákvað ég að segja frá því. Tjah, ekki eins og það sé eitthvað sérlega merkilegt, en sá að töluverður tími hafði liðið frá síðustu færslu.
Sveiattan!
Þarf að halda áfram að pakka í dag og þrífa undan okkur skítinn. Hlakka ekkert sérlega til en það er svosem ekkert mikið annað í boði. Búin að afgreiða jólakort og gjafir, verður hvorteðer ekkert skreytt og það er skítaveður.
Ætti kannski að skella einhverri góðri músík á (helst ekki jólalög ef ég kemst hjá því) og feika það að mér finnist þetta skemmtilegt.
Flytjum eftir tvær vikur en erum búin að pakka bara sirka 5%? Er það normalt?
Ég kann ekkert að flytja heila búslóð, flutti seinast sjálf bara eitt rúm og nokkra kassa en einhvernveginn varð þetta að svaka búslóð með öllu tilheyrandi!
Hvernig gat þetta gerst?
Hvaðan kemur allt þetta dót??

Ég þarf greinilega að fara að hætta að halda afmæli, hætta að halda upp á jólin og hætta að fara í hættulegar búðir sem selja ógeðstöff dót.

Jáh, þar kom ég meðða!

þriðjudagur, desember 13, 2005

Ég laug

Er ekkert bissí.

En ég þarf samt að vera að pakka og þrífa. Hverjum dettur í hug að flytja á jólunum?

Æjæjæj

Er svo bissí að ég má varla vera að þessu.
En vantar þig örugglega ekki sófa?